Spurt og svarað
Hér eru atriði sem ég hef verið spurður um, vonandi
nýtast svörin ykkur.
Sp: Hvernig á réttur þyngdarflutningar að vera þegar stígið er fram í
dachi?
Í meginatriðum þá þarf að gæta þess að hafa hné beygð þegar
stígið er fram í dachi, hvort sem það er í fyrsta skrefi (kamae) eða þá
í áframhaldandi skrefum ásamt því að hafa bakið beint og mjaðmir
fram. Þyngdarpunktur á að vera í sömu hæð allan tímann sem gengið
er áfram í dachi, hvort sem það er zenkutsudachi, kibadachi, kokutsudachi
eða hver önnur staða sem notuð er. Þessu lýsi ég á síðunni
"grunntæknir"
þar sem sýnt er í myndum hvernig stíga á fram í zenkutsudachi og hvernig
á að ganga fram í zenkutsudachi. Með réttum þyngdarflutningi
þá fæst meiri kraftur út hverju skrefi með því að nýta sér að þyngd
sé á aftari fæti, t.d. í zenkutsudachi, þannig að þyngd er á
stuðningsfæti eða aftari fæti þegar skrefið er hálfnað og með því
næst þessi aukni kraftur sem leitað er eftir. Gæta verður þess að
hafa hæl í gólfi allan tímann því annars er hættan á að
þyngdarflutningur verði ekki réttur.
Sp: Af hverju er verið að leggja svona mikla áherslu á mjaðmir í
mawashi-geri?
Að undanförnu hefur verið rætt um notkun mjaðma í spörkum og ástæður
fyrir því af hverju mjaðmir séu svona mikilvægar. Þegar verið er
að framkvæma spörk verður að huga að því hvaða orkan kemur. Ef við tökum mawashigeri fyrir, þá er mikilvægt
að stilla mjöðmina af áður en hné er lyft upp, þ.e. að finna eins og
mjöðminni sé "velt" upp á við þannig að beltishnúturinn vísi
upp á við. Þegar búið er að stilla mjöðmina af er auðveldara að
halda henni inn í tækninni. Ef mjöðm er ekki rétt notuð í
mawashigeri þá mun sparkið einungis snúast um sjálft sig og tæknin rétt
ná fram fyrir stöðuna sem sparkið er framkvæmt í. Krafturinn í
sparkinu yrði þá í raun einungis sveiflan sem næst með því að lyfta
löppinni upp og færa hana fram á við. Með því að beita mjöðminni
í sparkinu þá næst krafturinn alla leið þegar sparklöppinni er spyrnt
frá gólfi og fer þá krafturinn í gegnum mjöðmina og fram í
tæknina. Að sama skapi er auðveldara að stýra sparkinu ef mjöðmin
er höfð með, hvort sem sparkið á að vera í chudan eða jodan hæð.
Mawashigeri ætti að framkvæma í eftirtöldum skrefum; stilla mjöðm af,
flytja þyngd framar á stuðningslöpp (fremri fót í z-dachi), lyfta hné upp
þannig að hné og hæll séu í sömu hæð og mjöðm áður en hné á
sparklöpp fer "fram fyrir" stuðningslöpp, gæta þess að mjöðm
sé inni allan tíma, snúa stuðninslöpp um leið og sparkið er framkvæmt,
gæta þess að draga löppina vel til baka áður en hún er sett niður.
Sp: Hvað er Hikite og áhersla á hikite í kýlingum?
Þegar talað er um hikite, þá er verið að meina þegar stuðningshönd er dregin aftur til baka að líkama t.d. við högg eða kýlingu. Hnefinn á að nema við beltisstað og olnbogi fast að líkama þannig að ekki myndist "op" á milli líkama og olnboga. Eftir því sem karateka nær betri tökum á listinni, þeim mun mikilvægara er að hann noti hikite rétt. Þegar kýlt er í karate, er ekki einungis notuð sú hönd sem framkvæmir höggið heldur einnig sú hönd sem á sama tíma er dregin til baka. Þegar hönd er dregin til baka í kýlingu (hikite) þá myndast kraftur sem síðan má umbreyta yfir í höggið.
Sp: Hvað er Rengeri?
Rengeri er tvö spörk í röð, oftast notað um tvö maegeri sem framkvæmd eru hvort á eftir öðru. Í gráðunarkröfum er rætt um að fyrst sé sparkað maegeri chudan og síðan maegeri jodan, þannig að nemandinn sýni mun á spörkum eftir því á hvort svæðið er gert árás. Sparkað er með aftari fæti, en varast skal að rugla rengeri við maeashigeri-maegeri sem er spark með fremri-spark með aftari, framkvæmt úr sömu stöðu.
Sp: Hvað er Tanden?
Með Tanden þá er átt við notkun á mjöðm. Í kröfunum fyrir 8.kuy kemur Tanden fyrir, þar sem nemendur eiga að vera með tanden á réttum stöðum. Það sem átt er við, að nemandinn geti sýnt fram á mismun í stöðum m.t.t. mjaðmar, hvar þyngdarpunkturinn eigi að vera. Í Zenkutsudachi á þyngdarpunkturinn að vera frammi þar staðan er "framstaða" og í kokutsudachi á þyngdarpunkturinn að vera á aftari löpp, hné á aftari löpp á að vera beint undir mjöðm. Mjöðm í kokutsudachi á ekki að vera fyrir miðju.
Sp: Hvað er átt við með að nota Hamni og Gyaku Hamni í vörnum og höggum?
Hamni er beiting á mjöðm í Zenkutsudachi þegar varið er. Hefðbundin notkun á mjöðm í Z-dachi er að hún sé bein t.d. í Oizuki. Að sama skapi á mjöðm að vera aftur í vörnum til að minnka það svæði sem hægt er að gera árás á. Sú staða er einnig oft kölluð Hamni til aðgreiningar á Z-dachi. Gyaku Hamni er öfug m.v. Hamni en það kemur t.d. fyrir í kata Heian Nidan þegar stíga á fram Z-dachi og verja Gyaku uchi uke, þá á mjöðm að vera "öfug" m.v. hefðbundna vörn.