Shotokan Karate - Kata

Kata er einn af meginþáttum í shotokan karate ásamt kumite og kihon (grunnhreyfingum).  Allir þrír þættirnir eru sjálfstæðir en mynda samt órjúfandi heild af shotokan karate.  Það er ekki æskilegt að taka einn þáttinn út og leggja eingöngu áherslu á hann á æfingum heldur leggja jafnmikla áherslu á þá alla. 

Kata er bardagi við ímyndaðann andstæðing þar sem skiptast á varnir og sóknir, hvort sem það er með höndum eða fótum.  Horfa má á kata sem bardaga við marga andstæðinga sem koma úr sitt hvorri áttinni fremur en bardaga við einn andstæðing.  Hver tækni í kata á að framkvæma með því hugarfari, að þær séu einstakar og hafi hámarksáhrif bæði til varnar sem og sóknar.  Hver kata í shotokan karate hefur sín einkenni.  

Þegar kata er framkvæmd stendur karate-ka í musubi dachi (hælar saman, tær með 45° horn) og hefur hendur með síðu.  Hann hneigir sig (rei) og tilkynnir nafnið á kata, síðan fer hann í byrjunarstöðu (Yoi).  Allar Heian kata byrja í sömu stöðu (heiko dachi) en síðan er það mjög mismunandi eftir kata í hvaða stöðu er byrjar í.  Allar kata byrja og enda með rei. 

Hér má sjá linka inn á lýsingar á einstökum kata en sumum lýsingunum fylgir myndir sem sýna framkvæmdina á kata. 

Kihon kata

Heian Shodan

Heian Nidan

Heian Sandan

Heian Yondan 

Heian Godan 

Tekki Shodan


Ég hef bætt við myndskeiði af kata sem sýnir hvernig framkvæma eigi hverja kata fyrir sig.  Ég tók þá ákvörðun að sýna þessar kata hægar en venjulega þar sem áherslan hjá mér er að sýna hverja tækni þannig að hægt sé að læra af þessari útfærslu.  Oft þegar horft er á kata sem sýnd er af fullum krafti og takti, þá sést ekki alltaf nógu greinilega hvernig tæknirnar eru framkvæmdar, sérstaklega ekki þegar sá sem horfir er að læra þær. 

Einnig hef ég bætt við myndskeiðum af þeim tæknum sem "snúa baki" við áhorfandann þegar kata er framkvæmd.  Talning á skrefum vísar til lýsingar á kata sem er hér á síðunni. 

Ég vona að þeir sem horfa sýni þessu skilning og taki tillit til þess. 

Kihon kata 5,3 mb Heian Shodan 3,7 mb Heian Nidan 3,7 mb
Heian Nidan, skref 16-20 1,1 mb Heian Sandan 3,3 mb Heian Sandan, skref 9-13 1,5 mb
Heian Yondan 3,6 mb Heian Yondan, skref 14-22 2,1 mb Heian Godan 3,4 mb