Tekki Shodan


Tilkynna kata:
Tekki Shodan - YOI

Byrjunarstaða: Heisoku dachi.

  1. Heisoku dachi, vinstri hönd yfir þeirri hægri, í sömu hæð og beltið. 
  2. Horfa til hægri um leið og vinstri fótur er færður yfir hægri fót (hægt) síðan framkvæma fumi komi með hægri fót, stíga niður í kiba dachi og verja með hægri hendi haishu uke chudan.
  3. Á staðnum slá vinstri empi chudan í opna hægri hönd (snúa mjöðm og öxlum með). 
  4. Snúa höfðinu til vinstri um leið og hendur eru settar að vinstri mjöðm (koshi kamae), halda stöðu ennþá í kiba dachi. 
  5. Á staðnum verja með hægri hendi gedanbarai, sama staða.   
  6. Á staðnum kýla með hægri hönd kagi zuki, vinstri hönd hikite, sama staða.  
  7. Færa hægri fót yfir vinstri (kosa dachi), framkvæma vinstri fumi komi um leið og stígið er yfir í kiba dachi, horfa fram og verja með hægri hendi uchi uke.  
  8. Á staðnum verja með hægri hendi gedanbarai um leið og varið er með vinstri hendi nagashi uke jodan.
  9. Á staðnum slá með vinstri hönd ura zuki, hafa hægri hönd undir vinstri þannig að hægri úlnliður sé undir vinstri olnboga (Athuga tækni 8 og 9 eru samtímis).
  10. Horfa til vinstri, framkvæma með vinstri fót ashi nami gaeshi, lenda aftur í kiba dachi og framkvæma um leið til vinstri með vinstri hönd sokumen uke chudan (snúa mjöðm og öxlum með).
  11. Horfa til hægri, framkvæma með hægri fót ashi nami gaeshi, lenda aftur í kiba dachi og framkvæma um leið til hægri með vinstri hönd sokumen uke chudan (snúa mjöðm og öxlum með). 
  12. Snúa höfðinu til vinstri um leið og hendur eru settar að hægri mjöðm (koshi kamae).  
  13. Sama staða og kýla með hægri hönd chudan kage zuki um leið og slegið er með vinstri hönd chudan sokumen zuki (tvöföld kýling) - KIAI!
  14. Á sama stað, færa vinstri höndina rólega undir hægri og verja til vinstri haishu uke chudan.
  15. Á staðnum slá hægri empi chudan í opna vinstri hönd (snúa mjöðm og öxlum með). 
  16. Snúa höfðinu til hægri um leið og hendur eru settar að hægri mjöðm (koshi kamae), halda stöðu ennþá í kiba dachi. 
  17. Á staðnum verja með vinstri hendi gedanbarai, sama staða. 
  18. Á staðnum kýla með vinstri hönd kagi zuki, hægri hönd hikite, sama staða.
  19. Færa vinstri fót yfir hægri (kosa dachi), framkvæma hægri fumi komi um leið og stígið er yfir í kiba dachi, horfa fram og verja með vinstri hendi uchi uke.  
  20. Á staðnum verja með vinstri hendi gedanbarai um leið og varið er með hægri hendi nagashi uke jodan.
  21. Á staðnum slá með hægri hönd ura zuki, hafa vinstri hönd undir hægri þannig að vinstri úlnliður sé undir hægri olnboga (Athuga tækni 20 og 21 eru samtímis).
  22. Horfa til hægri, framkvæma með hægri fót ashi nami gaeshi, lenda aftur í kiba dachi og framkvæma um leið til hægri með hægri hönd sokumen uke chudan (snúa mjöðm og öxlum með). 
  23. Horfa til vinstri, framkvæma með vinstri fót ashi nami gaeshi, lenda aftur í kiba dachi og framkvæma um leið til vinstri með hægri hönd sokumen uke chudan (snúa mjöðm og öxlum með). 
  24. Snúa höfðinu til hægri um leið og hendur eru settar að vinstri mjöðm (koshi kamae).
  25. Sama staða og kýla með vinstri hönd chudan kage zuki um leið og slegið er með hægri hönd chudan sokumen zuki (tvöföld kýling) - KIAI!
  26. Opna hendur um leið og horft er fram, draga hægri fót að vinstri, stíga upp í heisoku dachi, vinstri hönd yfir þeirri hægri, í sömu hæð og beltið.