|
Heian Yondan |
 |
Hér fyrir neðan má sjá hvernig framkvæma á kata Heian Yondan.
Myndirnar lýsa því í hvaða átt hvert skref er en fyrir neðan má sjá
nákvæmari lýsingar á þeim tæknum sem eiga við hvert skref í
kata.
-
- Tilkynna kata: Heian Yondan - YOI
Byrjunarstaða: Heiko dachi.
- Stíga til hliðar með vinstri fót í kokutsu dachi, vinstri hönd í
haiwan jodan yoko uke og hægri hönd á sama tíma í mae yoko jodan kamae.
Þessi hreyfing er hæg og eiga hendur og fætur að enda á sama
tíma. Lófarnir eiga að vera í sömu hæð (báðar varnirnar eru
með opinni hönd).
- Færa þyngdina yfir á vinstri löpp og yfir í hægri kokutsu dachi,
á sama tíma hægri hönd í thaiwan jodan yoko uke og vinstri hönd á
sama tíma í mae yoko jodan kamae. Þessi hreyfing er hæg og eiga
hendur og fætur að enda á sama tíma. Lófarnir eiga að vera í
sömu hæð (báðar varnirnar eru með opinni hönd).
- Snúa í 90° og stíga í vinstri zenkutsu dachi - juji gedan uke
(krossvörn).
- Stíga fram hægri kokutsu dachi - morote uke.
- Vinstri löpp er dregin að líkama tilbúin í spark og hnefarnir eru
settir í kamae hjá hægri mjöðm (koshi). Þessi hreyfing er ekki
hugsuð sem kime (þ.e. ekkert stopp hér) heldur undirbúningur fyrir
sparkið sem á eftir kemur.
- Næst er sparkað
vinstri yoko geri keage og á sama tíma uraken með vinstri hönd. Athuga
að hafa hægri hönd hikite á meðan þessi tækni er framkvæmd.
- Taka vinstri fót að líkama og stýra líkamanum niður í vinstri zenkutsu dachi,
um leið framkvæma hægri chudan empi í opin lófa á vinstri hendi.
Athuga að tækni 6 og 7 eru samtímis.
- Stíga með vinstri fót hálft skref um leið og við snúum okkur
180°, draga hægri löpp að líkama tilbúna í spark og setja hnefana
í kamae hjá vinstri mjöðm (koshi). Þessi hreyfing er ekki
hugsuð sem kime (þ.e. ekkert stopp hér) heldur undirbúningur fyrir
sparkið sem á eftir kemur.
- Næst er sparkað hægri yoko
geri keage og á sama tíma uraken með hægri hönd. Athuga að
hafa vinstri hönd hikite á meðan þessi tækni er framkvæmd.
- Taka hægri fót að líkama og stýra líkamanum niður í hægri zenkutsu dachi,
um leið framkvæma vinstri chudan
empi í opin lófa á hægri hendi. Athuga að tækni 9 og 10 eru
samtímis.
- Á sama stað framkvæma vinstri shuto gedan og hægri shuto jodan.
Það er ekkert stopp eftir undirbúninginn heldur er farið beint í
næstu tækni.
- Næst er mjöðmum snúið í 90° fram í vinstri zenkutsu dachi, vinstri hendi shuto
uke jodan og vinstri hendi framkvæmir jodan shuto uchi.
- Stíga fram og sparka hægri mae geri, á sama tíma taka vinstri hönd
niður í chudan osae uke (opin hendi beint fram fyrir líkama) og hægri
hendi er tekin að hökunni til að undirbúa uraken. Um leið og
stigið er fram (eftir mae geri) er stigið niður í kosa dachi um leið
og kýlt er með hægri hendi tate uraken uchi (vinstri hönd hikite) - KIAI!
- Snúa á hægri fæti 135° yfir í vinstri kokutsu dachi, krossa hendur
fyrir framan líkama (vinstri hönd fyrir framan hægri) og framkvæma
chudan kakiwake uke. Þessar tæknir eru framkvæmdar
hægt.
- Stíga fram og sparka hægri mae geri, stýra líkamanum niður í
hægri zenkutsu dachi og kýla hægri oi zuki. Á sama stað kýla vinstri gyaku zuki chudan.
- Snúa í 90° á vinstri fæti yfir í hægri kokutsu dachi, krossa
hendur fyrir framan líkama (hægri hönd fyrir framan vinstri) og
framkvæma chudan kakiwake uke. Þessar tæknir eru framkvæmdar
hægt.
- Stíga fram og sparka vinstri mae geri, stýra líkamanum niður í
vinstri zenkutsu dachi og kýla vinstri oi zuki. Á sama stað kýla hægri gyaku zuki chudan.
- Snúa 45° á hægri fæti yfir í vinstri kokutsu dachi - morote
uke.
- Stíga fram hægri kokutsu dachi - morote uke.
- Stíga fram vinstri kokutsu dachi - morote
uke.
- Færa þyngdarpunkt fram í vinstri zenkutsu dachi og færa hendurnar
upp í jodan morote osae uke, á sama tíma framkvæma hægri hiza geri - KIAI!
- Snúa á vinstri fót í 180° með hægri fót að líkama og stíga
niður í vinstri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
- Stíga fram hægri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
- Stíga til baka með hægri löpp í Heiko dachi - YAME.