|
Heian Sandan |
 |
Hér fyrir neðan má sjá hvernig framkvæma á Heian Sandan.
Myndirnar lýsa því í hvaða átt hvert skref er en fyrir neðan má sjá
nákvæmari lýsingar á þeim tæknum sem eiga við hvert skref í kata.

- Tilkynna kata: Heian Sandan - YOI
Byrjunarstaða: Heiko dachi.
- Stíga til hliðar með vinstri fót í kokutsu dachi, verja með
vinstri hönd uchi uke chudan.
- Stíga með hægri fót að þeim vinstri í heisoku dachi (hæla og
tær saman), verja með vinstri hönd gedan barai og hægri hönd uchi uke chudan
(báðar varnir samtímis). Á sama stað um leið og fyrstu tvær
varnir eru búnar, verja með hægri hönd gedan barai og vinstri hönd
uchi uke chudan (báðar varnir samtímis).
- Stíga til hægri með hægri fót í kokutsu dachi, verja með hægri
hönd uchi uke chudan.
- Stíga með vinstri fót að þeim hægri í heisoku dachi, verja með
hægri hönd gedan barai og vinstri hönd uchi uke chudan (báðar varnir
samtímis). Á sama stað um leið og fyrstu tvær varnir eru
búnar, verja með vinstri hönd gedan barai og hægri hönd
uchi uke chudan (báðar varnir samtímis).
- Stíga til vinstri kokutsu dachi og verja morote uke.
- Verja með vinstri hönd osae uke um leið og stigið er fram hægri zenkutsu dachi
og með hægri hönd stungið nukite. Hægri höndin sem
framkvæmir nukite fer fyrir ofan vinstri hönd þar sem vinstra
handarbakið á að vera beint undir hægri olnboga.
- Snúa hægri hönd niður á við um leið og snúið er í 180°
snúning yfir í kiba dachi, kýla með vinstri hönd tetsui chudan
(hægri hönd hikite).
- Stíga fram í hægri Zen kutsu dachi og kýla hægri oi zuki - KIAI!
- Stíga með vinstri fót að hægri um leið og snúið er í 180°
snúning upp í heisoku dachi. Báðar hnefar eiga að nema við
belti þannig að olnbogar vísi út frá hlið.
- Stíga fram með hægri löpp fumi komi og lenda í kiba dachi,
verja með hægri olnboga, slá með hægri hendi uraken, taka hönd aftur.
Báðir hnefar eiga að enda hjá belti, olnbogar vísa til hliðar.
- Stíga fram með vinstri löpp fumi komi og lenda í kiba dachi,
verja með vinstri olnboga, slá með vinstri hendi uraken, taka hönd
aftur. Báðir hnefar eiga að enda hjá belti, olnbogar vísa til
hliðar.
- Stíga fram með hægri löpp fumi komi og lenda í kiba dachi,
verja með hægri olnboga, slá með hægri hendi uraken, taka hönd aftur.
Báðir hnefar eiga að enda hjá belti, olnbogar vísa til hliðar.
- Með hægri hönd framkvæma shuto uke, um leið og stígið er fram í
vinstri zenkutsu dachi og kýlt með vinstri hendi oi zuki chudan.
- Stíga með hægri fót í sömu línu og vinstri fótur, snúa 180° og
stíga til hægri í kiba dachi. Á sama tíma kýla með hægri
hendi jodan mawashi zuki og vinstri hendi empi (hikite).
- Stíga til vinstri í kiba dachi stutt án þess að breyta stöðu
fóta (slide), um leið og kýla með vinstri hendi jodan mawashi zuki og
hægri hendi empi (hikite) -
KIAI!
- Stíga upp með hægri löpp í Heiko dachi - YAME.