Heian Nidan

Hér fyrir neðan má sjá hvernig framkvæma á Heian Nidan.  Myndirnar lýsa því í hvaða átt hvert skref er en fyrir neðan má sjá nákvæmari lýsingar á þeim tæknum sem eiga við hvert skref í kata.   

         

Tilkynna kata: Heian Nidan - YOI

Byrjunarstaða: Heiko dachi. 

  1. Stíga til hliðar með vinstri fót í kokutsu dachi, vinstri hönd í tate uke jodan og hægri hönd á sama tíma í kamae jodan.  Hnefarnir eiga að vera í sömu hæð.  
  2. Verja með vinstri hönd soto uke og slá með hægri hönd ura zuki á sama tíma.  Höggið kemur undir vörnina og horft er til vinstri allan tímann.
  3. Með vinstri hönd slá yoko zuki og draga hægri hönd aftur í hikite.
  4. Færa þyngdina yfir á vinstri löpp og yfir í hægri kokutsu dachi, á sama tíma hægri hönd í tate uke jodan og vinstri hönd á sama tíma í kamae jodan.  Hnefarnir eiga að vera í sömu hæð.
  5. Verja með hægri hönd soto uke og slá með vinstri hönd ura zuki á sama tíma.  Höggið kemur undir vörnina og horft er til hægri allan tímann.
  6. Með hægri hönd slá yoko zuki og draga vinstri hönd aftur í hikite.  
  7. Stíga með vinstri löpp hálft skref og setja hnefana í kamae á sama tíma (vinstra megin) og hægri löpp er dregin að líkama tilbúin í spark.  Sparka með hægri löpp yoko geri keage og slá uraken með hægri hönd á sama tíma.  
  8. Stíga niður með hægri löpp í kokutsu dachi og verja með vinstri hönd shuto uke chudan.
  9. Stíga fram hægri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
  10. Stíga fram vinstri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
  11. Verja með vinstri hönd osae uke um leið og stigið er fram hægri zenkutsu dachi og með hægri hönd stungið nukite - KIAI.  Hægri höndin sem framkvæmir nukite fer fyrir ofan vinstri hönd þar sem vinstra handarbakið á að vera beint undir hægri olnboga.  
  12. Snúa í 90° og stíga í vinstri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
  13. Stíga áfram í 45° horn hægri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
  14. Færa hægri löpp 135° til baka í hægri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
  15. Stíga áfram í 45° horn vinstri kokutsu dachi - shuto uke chudan.
  16. Stíga fram í 45° horn í vinstri zenkutsu dachi og verja með hægri hönd gyaku uchi uke.  
  17. Sparka með hægri löpp mae geri, stíga niður í hægri zenkutsu dachi og kýla með vinstri hönd gyaku zuki.
  18. Á staðnum verja með vinstri gyaku uchi uke um leið og hægri löpp er dregin örlítið til baka.  
  19. Sparka með vinstri löpp mae geri, stíga niður í vinstri zenkutsu dachi og kýla með hægri hönd gyaku zuki.
  20. Stíga áfram í hægri zenkutsu dachi og verja morote uke.
  21. Snúa í 90° og stíga í vinstri zenkutsu dachi - gedan barai.
  22. Stíga áfram í 45° horn hægri zenkutsu dachi - age uke jodan.
  23. Færa hægri löpp 135° til baka í hægri zenkutsu dachi - gedan barai.
  24. Stíga áfram í 45° horn vinstri zenkutsu dachi - age uke jodan - KIAI!
  25. Stíga til baka með vinstri löpp í Heiko dachi - YAME.