|
Heian Godan |
 |
Hér fyrir neðan má sjá hvernig framkvæma á kata Heian Godan.
Myndirnar lýsa því í hvaða átt hvert skref er en fyrir neðan má sjá
nákvæmari lýsingar á þeim tæknum sem eiga við hvert skref í
kata.


- Tilkynna kata: Heian Godan - YOI
Byrjunarstaða: Heiko dachi.
- Stíga til hliðar með vinstri fót í kokutsu dachi og verja uchi uke.
- Á staðnum kýla hægri gyaku zuki chudan.
- Horfa yfir til hægri (180°snúning) um leið og hægri löpp er dregin rólega að
líkamanum yfir í heisoku dachi, á sama tíma vinstri kagi zuki.
Þessi tækni er gerð hægt en þó ákveðin.
- Stíga til hægri í kokutsu dachi og verja uchi uke.
- Á staðnum kýla vinstri gyaku zuki chudan.
- Horfa fram (90°snúning) um leið og vinstri löpp er dregin rólega að
líkamanum yfir í heisoku dachi, á sama tíma hægri kagi zuki.
Þessi tækni er gerð hægt en þó ákveðin.
- Stíga fram hægri kokutsu dachi - morote uke.
- Stíga fram zenkutsu dachi og verja juji uke gedan (krossvörn-hægri
hendi fyrir ofan vinstri).
- Á staðnum, færa hendurnar upp í jodan shuto juji uke (krossvörn
með opnum lófum).
- Taka hendur niður að mjöðm þannig að lófar beggja handa vísi að
hvor öðrum, verja osea uke sem endar rétt fyrir framan hægri mjöðm
(vinstri hönd fyrir ofan hægri, úlnliðir snertast).
- Um leið og farið er af stað í næsta skref á að kýla með vinstri
hendi choku zuki, stíga fram hægri zenkutsu dachi - oi tsuki - KIAI!
- Snúa á vinstri fót 180°, sparka gedan fumikomi um leið og stígið
er niður í hægri kiba dachi, verja með hægri hendi
gedanbarai.
- Horfa yfir til vinstri um leið og vinstri hendi er tekin undir hægri
olnboga yfir í vinstri haishu uke chudan. Þessi hreyfing er hæg
og ákveðin.
- Stíga í 180° og sparka mikazuki geri í opna vinstri hönd (hún á
að vera kyrr frá fyrri tækni), stíga niður í hægri kiba dachi og um
leið kýla hægri chudan empi inn í opin lófa á vinstri
hönd.
- Stíga áfram með vinstri fót að hægri í kosa dachi og verja um
leið morote uke chudan.
- Snúa 180° um leið og snúið er yfir í renoji dachi (L-laga staða,
hægri fótur ca. 20 cm. fyrir framan vinstri hæl) og kýla með hægri
hendi jodan ura zuki.
- Hoppa upp (hné vel að líkama) og snúa um leið 90°, taka hendur vel
að líkama (hikite) og enda niður í hægri kosa dachi (vinstri fótur
fyrir aftan þann hægri) og verja gedan juji uke - KIAI!
- Stíga upp til hægri í 90° og fram í hægri zenkutsu dachi - morote uke.
- Snúa 180° yfir í vinstri zenkutsu dachi, um leið og slegið er gedan
uchi komi, vinstri hönd á sama tíma upp að andliti og verja jodan
nagashi uke.
- Á staðnum færa þyngdarpunkt aftur yfir í vinstri kokutsu dachi,
verja vinstri gedan barai og hægri jodan uchi uke.
- Á staðnum draga vinstri fót að líkama upp í heiko dachi, hendur
kyrrar. Þessi hreyfing er róleg en ákveðin.
- Á staðnum snúa fram um 45°, færa hægri hönd fram nagashi uke og
vinstri jodan kamae, stíga fram hægri zenkutsu dachi um leið og slegið
er gedan uchi komi, hægri hönd á sama tíma upp að andliti og verja
jodan nagashi uke.
- Á staðnum færa þyngdarpunkt aftur yfir í hægri kokutsu dachi,
verja hægri gedanbarai og vinstri jodan uchi uke.
- Stíga til baka með hægri löpp aftur í Heiko dachi - YAME.