Grunntæknir í karate - fyrstu skrefin

Hér fyrir neðan ætla ég sýna hvernig helstu tæknir, varnir, högg og spörk eru framkvæmdar skref fyrir skref. 

Seiken - hnefi.  Áður en farið er í að æfa einstakar tæknir þá verður að kreppa hnefann rétt svo tæknir verði réttar.

Þegar við lærum að kreppa hnefa þá byrjum við á því að halda hendinni uppréttri með fingur saman (mynd 1).  Við beygjum fingurnar inn í lófann (mynd 2) og setjum svo þumalfingur yfir hina fingurnar (mynd 3) þannig að hann sé ekki fyrir utan hnefann.  Á mynd 4 má svo sjá krepptan hnefa eins hann á að vera séð framan á. 

Heiko dachi - viðbúin staða.

Heiko dachi er ein af grunnstöðum í karate sem við notum þegar við erum tilbúin til að framkvæma tæknir.  Við byrjum á að standa í musubi dachi (mynd 1), færum vinstri löpp út til vinstri um hálfa herðabreidd og hægri fót um sömu lengd til hægri (mynd 2).  Heiko dachi á að vera með herðarbreidd á milli fóta en um leið og við förum í heiko dachi þá kreppum við hnefann og krossum handleggi fyrir framan líkamann þannig að þeir enda beint fyrir framan lappirnar eins og sést á mynd 2 hér til hliðar. 

Hikite - hendi að líkama.

Eitt af mikilvægari atriðum sem hver karate iðkandi þarf að standa skil á er hikite.  Hikite þýðir að halda þeirri hendi sem er ekki í notkun að líkama og þá bæði hnefa og olnboga.  Í hikite þá verður að gæta þess að lófinn á hnefanum vísi upp þannig að hliðin á hnefanum sé næst beltinu en ekki fingurnar.  Eins og sést á myndunum hér til hliðar þá er hægri höndin alveg að líkama þannig að ekki "sést" á milli olnboga og líkama þegar horft er framan á iðkandann (mynd 2).  Þetta á við bæði í byrjun tækni og í lok tækni þegar höndin er dregin að líkama.

Choku zuki - framhögg.  Hér er átt við hefðbundna kýlingu sem framkvæmd er úr heiko dachi. 


Hér er byrjað á að setja vinstri hönd fram og staðsetja hana fyrir miðju (chudan).  Á sama tíma og hægri höndin fer fram í kýlingu þá þarf að gæta þess að vinstri höndin sé dregin samtímis til baka eins og sést á mynd 2 þar sem þessi ferill er byrjaður.  Gæta verður að því að snúa úlnlið í lok kýlingar en eins og sést á myndunum þá vísar lófinn upp á hægri hendinni í byrjun höggsins en í enda þess er búið að snúa úlnlið og lófinn vísar niður (mynd 3).  Gæta verður þess að halda hendi beinni allan tímann þannig að olnbogi sé í beinni línu fyrir aftan hnefa.  Á mynd 4-6 sést sama kýling sýnd frá hlið. 

Age uke - höfuðvörn.  Age uke er ætlað til að vera allar árásir sem koma í átt að höfðinu, frá hálsi og upp (jodan). 

Þegar við byrjum á að verja age uke þá setjum við vinstri höndina ca í hnefafjarlægð fyrir framan höfuðið en gætum þess að framhandleggurinn sé í 45°c halla en alls ekki beinn (mynd 1), hægri höndin er hikite að líkama.  Um leið og við förum með hægri hendina upp í vörn þá tökum við vinstri hendina niður þannig að sú hægri fer framfyrir þá vinstri (mynd 2) og þær "krossast" á leiðinni.  Á mynd 3 má sjá vörnina fullkláraða.

Soto uke - ytri miðvörn.  Soto uke er ætlað til að vera árásir sem koma á líkamann frá belti og að hálsi (chudan). 

Þegar við byrjum vörnina þá staðsetjum við hendina þannig að olnbogi er fyrir ofan öxl en til hliðar við höfuð, sjá mynd 1.  Höndin kemur svo skáhalt niður á við um leið og við tökum stuðningshönd til baka, mynd 2.  Að lokum þá endar hendin fyrir framan miðjan líkama þannig að hnefinn sé í sömu hæð og öxlin, sjá mynd 3.  Gæta verður þess að höndin sé fyrir framan miðjan líkama en gott er að miða við línu sem er frá beltishnúti og upp að andliti.  Eins og sést þá látum við úlnlið snúast um leið og við klárum vörnina þannig að handarbakið vísar fram.  

Uchi uke - innri miðvörn. Uchi uke er einnig ætlað til að vera árásir sem koma á líkamann frá belti og að hálsi (chudan). 

Við byrjum á því að setja vinstri hendina undir þá hægri eins og sést á mynd 1.  Þar á eftir tökum við vinstri hendina fram undan þeirri hægri þannig að hún komi fyrir framan  Að lokum endum við með vinstri hendina fyrir framan öxlina þannig að hnefinn sé í sömu hæð og öxlin, sjá mynd 2.  Gæta verður þess að hendin fari ekki út fyrir líkamann heldur sé beint fyrir framan líkamann.  

Gedan barai - neðri vörn. Gedan barai er ætlað til að verja árásir sem beint er að líkamanum fyrir neðan belti.  

Við byrjum með vinstri hendina fyrir framan líkama, sjá mynd 1, við setjum síðan hægri höndina upp að vinstra eyra eins og sést á mynd 2.  Gæta verður þess að olnbogar komi vel saman en síðan færum við hægri hendina niður um leið og við drögum þá vinstri að líkama (hikite) eins og sést á mynd 3.  

Shuto uke - sverðvörn.  Shuto uke er einnig ætlað til að vera árásir sem koma á líkamann frá belti og að hálsi (chudan).

Shuto uke eða sverðsvörnin notast við opna hönd en ekki lokaða eins og aðrar varnir sem eru hér á síðunni.  Við byrjum á því að setja vinstri hönd með opinn lófa upp að hægra eyra þannig að lófinn snúi að andliti, sjá mynd 1, en höfum hægri höndina beint fram og látum lófan vísa niður.  

Mae geri - framspark. Mae geri er ætlað til árásar fram á við, notast er við táberg sem þann flöt sem lendir í andstæðingi.  


Við byrjum í heiko dachi með hendur uppi til að halda jafnvægi.  Við byrjum á því að lyfta hægra hné upp, sjá mynd 2, án þess að hreyfa vinstri fót.  Þar á eftir réttum við úr fótleggnum án þess að breyta hæð á hné, sjá mynd 3, eftir að sparkið er framkvæmt þá drögum við fótlegginn til baka án þess að breyta um hæð á hné, mynd 4.  Við framkvæmd á mae geri er mikilvægt að halda hné í sömu hæð á meðan sparkað er en einnig að rétta ekki alveg úr hnéinu þannig að það "læsist" ekki því það getur haft slæm áhrif á hnéið.  Neðri myndirnar þrjár sýna sparkið frá hlið.  

Yoko geri - hliðarspark. Yoko geri er ætlað til árásar til hliðar, en notast er við jaðarinn á fótinum sem þann flöt sem lendir í andstæðingi.  


Við byrjum í heiko dachi með hendur uppi til að halda jafnvægi.  Við byrjum á því að lyfta hægra hné upp, sjá mynd 2, án þess að hreyfa vinstri fót, en hér er mjög gott að stilla fótinn af þannig að jaðarinn á fætinum sé í þá átt sem á að sparka.  Um leið og við spörkum til hliðar, sjá mynd 3, þá þurfum við að gæta þess að snúa stuðningsfót þannig að hællinn vísi í átt að sparki en það sést einnig á mynd 3.  Eftir að sparkið er framkvæmt þá drögum við fótlegginn til baka og réttum stuðningsfót af eins og sést á mynd 4.  Við framkvæmd á yoko geri er mikilvægt að nota mjöðmina rétt en hluti af því er að snúa snúningsfót ásamt því að nota mjöðmina þannig að bein lína sé frá hæl, upp hné, mjöðm og öxl.  Ef mjöðm er ekki rétt notuð í yoko geri þá mun línan verða bogadregin þannig að rassinn "standi út" í loftið.  Neðri myndirnar þrjár sýna sparkið frá hlið, á þriðju myndinni í neðri röð sést vel hvernig mjöðmin er "inni" í sparkinu þannig að það myndast lína frá hæl, í gegnum hné, mjaðmir og upp í öxl.  

Mawashi geri - snúningsspark. Mawashi geri er ætlað til árásar fram á við, ýmist er táberg eða rist notuð sem þann flöt sem lendir í andstæðingi. 

Eins og áður þá byrjum við í heiko dachi þegar spörkin eru útskýrð.  Við byrjum á því að lyfta hægri fót upp frá hlið eins og sést á mynd 1. Gæta þarf þess að hæll og hné sé í svipaðri hæð og haldist þannig þangað til að sparkið sé búið.  Mjög mikilvægt er að hafa mjöðmina "inni" allan tímann sem verið er að framkvæma sparkið.  Því næst er líkamanum snúið á stuðningsfæti þannig að hné á sparkfæti vísar fram á við eins og sést á mynd 2, takið eftir að hné og hæll hafa ekki hreyfst neitt og mjöðm er ennþá "inni".  Þegar hér er komið þá framkvæmum við sjálft sparkið með því að færa legginn fram á við eins og sést á mynd 3, hér er notast við táberg sem sparkflöt.  Á mynd 3 sést vel hvernig mjöðmin er vel inni í sparkinu enda má sjá línu frá hæl og upp að öxlinni.  Sparkið er tekið til baka sömu leið og það hófst.    

Zenkutsu dachi - framstaða.  Hér ætla ég að sýna hvernig eigi að stíga í zenkutsu dachi úr heiko dachi.  

Til að byrja með þá stöndum við í heiko dachi eins og sést á mynd 1.  Síðan setjum við hendur á mjaðmir um leið og við beygjum bæði hné (mynd 2) en gætum þess að halda herðarbreidd á milli lappa allan tímann.  Þar á eftir þá setjum við vinstri fót út um eitt og hálft skref með fremra hné bogið eins og sést á mynd 3, en mynd 4 sýnir svo zenkutsu dachi frá hlið.  Gæta verður þess  að hafa bakið beint allan tímann þegar farið er í zenkutsu dachi ásamt því að hafa axlir og mjaðmir beinar eins og sést vel á mynd 4.  

Zenkutsu dachi - framstaða. Hér ætla ég að sýna hvernig ganga á í zenkutsu dachi sem er ein af þeim stöðum sem við notum hvað mest.  


Til að byrja með erum við í vinsti zenkutsu dachi eins og sést á mynd 1.  Til að byrja með þá stígum við með hægri fót að miðju þannig að báðir fæturnir eru saman og hné bogin.  Næst setjum hægri fótin út til hliðar þannig að við séum að fá herðarbreidd á milli fóta, sjá mynd 3, að lokum þá stígum við skrefið til fulls eins og sést á mynd 4.  Neðri myndaröðin sýnir sömu skref frá hlið.  Gætið þess að bakið sé beint allan tímann ásamt því að herðar og mjaðmir séu bein.  Zenkutsu dachi er framstaða og við erum með 70% af líkamsþunga á fremri fót og af þeim sökum mjög mikilvægt að hafa fremra hné bogið og tær á fremri fæti beint áfram.  Allan tíma þá þarf að gæta þess að hæll á aftari fæti sé í gólfinu og lyftist ekki upp þegar gengið er áfram.  

Mawate - snúningur. Mawate er þegar við snúm við í stöðum (dachi).  Hér er sýnt snúningur í zenkutsu dachi.  

Eins og sést á mynd 1, þá snúum við í átt að vegg en megintilgangur með mawate er að verja áras sem kemur úr annarri átt þ.e. árás í átt að baki.  Til að byrja með þarf að snúa haus við til að sjá hvaðan árásin kemur en um leið undirbúa vörnina sbr. mynd 2, hér er notast við gedanbarai.  Síðan er aftari fótur færður beint yfir þannig að sama bil er á milli fóta á eftir sem og fyrir snúning, sjá mynd 3.  Næst er mjöðmum snúið við, sjá mynd 4, ásamt því að vörnin er kláruð eins og sést á mynd 5.  Þess ber að geta, að snúningurinn er gerður í einni hreyfingu þrátt fyrir að vera sýndir hér í 4 skrefum.  Mikilvægt er að muna eftir að horfa áður en farið er í snúning, hafa vörnina klára áður og að lenda í sömu stöðu og þið voruð í áður en snúningur hefst. 

Kokutsu dachi - bakstaða. Kokutsu dachi er ein af grunnstöðum í shotokan karate og þar er 70% þungi á aftari fæti.  

Við byrjum í heiko dachi, beygjum hné og setjum vinstri hönd upp að eyra til að undirbúa shuto uke, sjá mynd 1.  Næst færum við vinstri fót út í beinni línu út frá hægri fæti til að fá þá línu sem við ætlum að stíga í, sjá mynd 2, en kokutsu dachi er framkvæmt í beinni línu, við gætum þess að hafa mjaðmir séu ennþá beinar og stuðningsfótur óhreyfður.  Næst stígum við fullt skref út en við stígum um eina skreflengd fram, sjá mynd 3, þá fyrst snúum við mjöðmum og stuðningsfót til að fá kraft í stöðuna en mikilvægt er að halda mjöðminni eftir þangað til í lok á skrefi til að geta beitt henni rétt.  Á mynd 4 má sjá kokutsu dachi shuto uke frá hlið.  Þegar við stígum í kokutsu dachi þá þurfum við að gæta þess að stuðningsfótur sé beint undir mjöðm og að lappirnar myndi L þannig að tærnar á stuðningsfót vísi til hliðar en tærnar á fremri fót vísi beint fram.  Kokutsu dachi er bakstaða þannig að 70% af þyngd þarf að vera á aftari fæti sem næst með því að hafa mjöðm yfir aftari fót.  

Kiba dachi - gleiðstaða.  Kiba dachi er ein af grunnstöðum í shotokan karate og þar er líkamsþungi dreift jafnt yfir báðar fætur.

Við byrjum í heiko dachi, beygjum hné og setjum vinstri hönd upp að eyra til að undirbúa gedan barai, sjá mynd 1.  Næst færum við vinstri fót út í beinni línu út frá hægri fæti til að fá þá línu sem við ætlum að stíga í, sjá mynd 2, en kiba dachi er framkvæmt í beinni línu þannig að hælarnir séu í línu.  Eins og í kokutsu dachi þá er mikilvægt að hafa mjaðmir ennþá beinar og stuðningsfótur óhreyfðan eins og sést á mynd 2.  Næst stígum við fullt skref út en við stígum um eina skreflengd fram, sjá mynd 3,  en þá fyrst snúum við mjöðmum og stuðningsfót til að fá kraft í stöðuna en mikilvægt er að halda mjöðminni eftir þangað til í lok á skrefi til að geta beitt henni rétt.  Á mynd 4 má sjá kiba dachi gedan barai frá hlið.  Kiba dachi er gleiðstaða sem lýsir sér þannig að við erum með þyngdarpunktinn fyrir miðju og dreift janft yfir báðar fætur.