Byrjendur - hver eru fyrstu atriðin sem lært er um í karate?

Hugmynd mín með þessari síðu er að setja upp nokkur af þeim atriðum sem mikilvæg er að muna fyrir byrjendur í karate.  Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem við kennararnar erum spurðir út í á æfingum.  

Obi - belti.  Þegar við erum komin í karatebúning þá þarf að setja á sig karatebelti sem kallast obi á japönsku.  Það er ekki sama hvernig belti eru vafin um búninginn en myndirnar hér að neðan eiga að hjálpa til við að sýna rétta aðferð við að setja á sig beltið.  . 

Fyrst er u.þ.b. 20 cm. endi skilinn eftir fyrir framan (mynd 1) og beltið vafið utan um líkamann tvo hringi.  Þegar búið er að vefja beltið (mynd 2) þá er hinum endanum á beltinu stungið undir báða vafningana (mynd 3).  Síðast er efri endinn settur yfir neðri endann (mynd 4) og hann síðan stungið í gegn þannig að réttur hnútur myndast (mynd 4).  

Musubi dachi - byrjunarstaða

Við setjum hælana saman og látum tærnar vísa í 45° gráður til sitthvorra hliðana.  Hendur eru hafðar beinar með síðum og bakið beint.  Musubi dachi notum við á ýmsum stöðum, s.s. þegar við erum að fara að hneigja okkur, stöndum í línu, í byrjun á kata eða þá þegar við erum að hlýða á skýringar kennarans.  Musubi dachi hefur oft einnig verið nefnd hachinjo dachi og þá oft í kennslubókum þegar verið er að lýsa hvernig framkvæma eigi kata

Rei - hneiging.  Þegar við komum inn í dojo eða karatesalinn þá sýnum við því umhverfi virðingu með því að hneigja okkur.  Við sýnum að auki kennaranum, andstæðingum og þeim sem við erum að æfa okkar virðingu með sama máta og hneigjum okkur einnig fyrir viðkomandi. 
   
Þegar við hneigjum okkur, þá byrjum við á því að standa í musubi dachi, mynd 1, þar á eftir beygjum við höfuðið niður eins og sést á myndum 2 hér að ofan. Þegar við hneigum okkur þá horfum við fram á við þannig að við missum aldrei sjónar af andstæðingnum. 

Seisa - Sest niður.  Við sýnum umhverfi okkar virðingu á marga vegu í karate.  Ein af þeim leiðum er að setjast niður í seisa til að hlíða á kennarann eða þá til að hneigja sig og sýna viðkomandi aðila virðingu.  


Við byrjum á því að standa í musubi dachi og beygjum okkur niður í hnjánum (mynd 2) en gætum þess að halda höndunum rétt fyrir ofan hné þar sem þær eru alveg þar til við erum sest.  Síðan setjum við vinstra hné niður (mynd 3), síðan það hægra (mynd 4) og að lokum setjumst við (mynd 5) en um leið setjum við hægri stóru tá ofan á vinstri stóru tá (mynd 6). Þegar við stöndum upp þá förum við alveg eins að nema að sjálfsögðu í öfugri röð.  

Seisa Rei - hneiging úr seisa.  Við hneigjum okkur bæði sitjandi og standandi.  Hneiging úr seisa er framkvæmd á annan máta heldur en standandi hneiging eins og sjá má á myndum hér fyrir neðan. 

Úr seisa þá setjum við fyrst hægri hönd beint fram fyrir höfuðið á okkur (mynd 2), síðan þá vinstri (mynd 3) og að lokum þá beygjum við höfuðið fram og látum það vera 3-4 cm fyrir ofan hendurnar í eitt augnablik (mynd 4).  Síðan förum við sömu leið til baka, réttum höfuðið við, tökum vinstri hendina upp, síðan þá hægri og að lokum endum við aftur í upphaflegu stöðunni.